3.11.2008 | 21:29
Á réttri leið:)
Það gengur allt vel enn þá upp í húsi. Ekkert stopp enn. Þó að píparinn kemst ekki alveg strax, þar sem gólfefnakerfið er ekki til á landinu, en er væntanlegt í þessari viku, svo við vonum að hann komist til okkar ú vikunni.
En á meðan þá er smiðirnir að setja upp loftgrindurnar. Múrarinn er búinn í bili, á bara eftir bílskúrin og smá inní gluggum. Hann ætlar að koma aftur um miðjan nóvember. Og vonandi getur hann líka flísað fyrir okkur baðherbergið í leiðinni.
Svo ef allt stenst, þá ættum við enn að geta flutt inn fyrir jól
Hérna koma nokkrar myndir sem ég tók um helgina
VIð hjónin í stofunni okkar
Við héldum uppá afmælið hennar Veigu um sl helgi. Hún var voða ánægð með alla gestina:) Hún fékk þennan fína kjól frá mömmu, sem hún prjónaði á hana.
Það fer alveg að koma að því að hún fari að labba. Svo gengur henni voða vel á leikskólanum. Smá bakslag samt núna, þegar ég er að fara á morgnana. En hún er fljót að jafna sig. Svo í dag þegar ég sótti hana, þá var svo gaman hjá henni, að hún var ekkert alveg tilbúinn að fara heim
En jæja hef þetta ekki lengra í bili, ætla að fara að mála kermik, var að kaupa mér jólastyttur, og er í kafi í því núna. Mér finnast það svona notalegt með veturnar, þá fer maður að gera meira svona. Ég hef verið að sauma út á kvöldin, yfir sjónvarpinu. Og núna ætla ég mér að fara að mála:)
Sv ég bið að heilsa ykkur í bili
með kveðju
Bryndís
Athugasemdir
Rosalega er skvísan flott í þessum kjól, Gaman að fygljast með húsabyggingu, maður er bara orðin spenntur fyrir þina hönd að flytja inn
Bestu kveðjur frá Akureyri
Jóhanna Varða (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 09:54
hæhæ!
Bara að kvitta fyrir innlitið:)
flottar myndir :)
kv. Hafrún
Hafrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 16:42
Flottur kofi sem þið eruð að koma yfir ykkur. Verður gaman að heimsækja ykkur í framtíðinni þegar ég loks dröslast í heimsókn til einhvers. Kv. Eddi.
Edvard Kristinn Guðjónsson (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 02:48
Það er aldeilis að verða flott húsið ykkar. Kjóllinn hennar Veigu lítlu er æðislegur. Mamma þín er líka svoddan snillingur í höndunum. Til hamingju með afmælið hennar Veigu. Bið svo að heilsa öllu þínu fólki. Kv. Guðný Zíta.
Guðný Zíta (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 23:55
Halló. Til hamingju með dótturina, hún er aldeilis flott í þessum kjól, enda hefur hún móðir þín löngum verið fræg í Árneshreppi (og örugglega víðar) fyrir flottar hannyrðir og handverk. Vona að það gangi áfram vel með húsið, þetta lítur allt saman rosa vel út.
Kveðja frá Akureyri, Ingibjörg
Ingibjörg (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 14:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.