23.10.2008 | 17:09
halló
Jæja best að koma með smá blogg Lífið gengur sinn vanagang hér í Grundarfirði. Bjarni er á fullu uppí húsi með múraranum. Það gengur bara rosa vel. Ég verð að fara að taka mynd og setja inn hér:) Þeiru eru að vinna í húsinu frá 8- 19 svo það er langur vinnudagur. Það þýðir ekkert að slaka á ef við ætlum að reyna að flytja inn fyrir jól. Sumir segja að ég sé ansi bjartsýn á að geta flutt inn fyrir jólin, en ég er ekki enn búinn að gefa upp vonina um það. Mér er sama þó ég flytji inn á aðfangadag, bara að það sé fyrir jól, og við getum haldið jól þar. Nenni ekki að halda jól aftur í kössum, og hana nú.......
Veiga er veik núna, svo hún hefur bara mætt 1 daga á leikskólan í þessari viku. En hún er öll að lagast núna. Svo var Indi að brjóta glerið í gleraugunum sínum. Hann var að hlaupa úti og datt á hausin og beint á gleraugun. Svo ég er að fara með hann til augnlæknis í næstu viku. Því það er nálgast að það verði komið ár síðan hann fékk gleraugun og hefur sjónin örugglega breyst síðan þá.
Í gær fórum við foreldrar í Grunnskólan með Einar. Þar sem hann byrjar í skóla á næsta ári, þá var okkur boðið að skoða skólan með öllum árgangunum hans Einars. Einar hlakka mikið til að byrja í skóla. Það verður mikið samstarf á milli skóla og leikskóla síðasta árið á leikskólanum, og sérstaklega eftir áramót Það verður gaman
En jæja best að segja þetta nóg í bili
Eitt myndband í lokin með ABBA til að koma okkur í gott skap
með abba kveðju Bryndís
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.