18.10.2008 | 21:01
Sólveig Stefanía 1 árs
Í dag er ár síðan að Sólveig fæddist Hún fæddist kl 22:40. Ég var hér heima í Grundarfirði þegar reglulegir verkir voru byrjaðir. Og drifum við okkur á Skagan. Og 5 mín eftir að við vorum komin á spítalan misst ég vatnið og 3 og hálfum tíma síðar var hún fædd Alveg yndisleg stund. Hún fæddist í framhöfuðstöðu, og þar að leiðand gekk þetta aðeins lengur fyrir sig. En gekk að lokum
Við mæðgur að hittast í fyrsta skipti 18 október 2007
við mæðgur í dag 18 október 2008
Hún er að byrja á leikskóla núna. Búinn að mæta 2 daga. Og var meiri segja haldið uppá afmælið hennar í gær. Henni finnst alveg æðinslega gaman að vera með krökkunum. Þetta er mun erfðara fyrir mig. Að litla barnið mitt sé byrjað í leikskóla. En henni finnst þetta ekkert mál
voða ánægð með kórununa í leikskólanum
Hef þetta ekki lengra að sinni, ætla að njóta laugardagskvöldsins með góðri mynd og sælgæti
kv. Bryndís
Athugasemdir
Ohhh hvað hún er myndarleg. Til hamingju með daginn í gær, steingleymdi að hringja þar sem ég datt líka ofan í nammiskálina
Kv. akureyrinni
Jóhanna Varða (IP-tala skráð) 19.10.2008 kl. 16:44
hæ hæ, æðisleg myndin af henni með kóronuna :) Til lukku með daginn.
Skil þig svo vel að það sé erfitt að skilja við hana, móðurhjartað er bara svona :) Held meira að segja að eftir því sem maður eldist og börnunum fjölgar styttist naflastrengurinn.
Hafið það gott!
Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 23:35
æhh þetta er alltaf jafn æðisleg mynd af litlu :D
Sara frænka (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 23:26
Innilega til hamingju með litlu dúlluna.
Kveðja frá Akureyri,
Ingibjörg
Ingibjörg (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 22:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.