haustveður

Já það er búið að vera sko haustveður, og í morgun sá maður að það hafði snjóað í fjöllinn, svo það fer að styttast í veturinn. 

Annars er múrarinn búinn að hlaða milliveggi í húsið okkar, hann kláraði það sl þriðjudag. Svo ekki voru þeir lengi að þessu. Svo núna um helgina fer Bjarni í að rífa allar milliveggjagrindur af.  Þetta er orðið svo flott að sjá þetta svona, herbergi fyrir herbergiSmile

sjónvarpsherbergið

Sjónvarpsherbergið, ákváðum að hafa bara lítin vegg þar, í staðin fyrir alveg upp í loft. Kemur bara mjög vel út.

sturtan okkar

búið að hlaða sturtuklefan

veggir komnir

tekið út úr stofunni, sést inní eldhús,þvottahús og anddyri.  Og stutti sjónvarpsherbergja-veggurinnSmile

16 september

herbergið okkar og séð yfir í herbergið hans Inda

 

Annars er bara allt ágætt héðan.  Nema það er smá vesen á húsnæðinum sem við búum í, þetta er gamalt hús, held um 50 ára  og eru núna allar lagnir að gefa sig.  Síðustu helgi var verið að kanna hvað væri að, og kom í ljós að lagnir útúr húsinu og í húsinu, væru flestar brotnar, og er ekki enn búið að tengja þetta, og hitti ég píparan áðan, og er þetta víst mun meira mál en þeir heldu í fyrstu, svo ég veit ekki hvernig þetta verður hér.  Ég er alla vega fegin að vera á leið í NÝTT hús. Og ekkert viðhald sem við þurfum að hafa áhyggjur af næstu árin.

Fórum á foreldraviðtal í gær á leikskólanum, og var verið að ræða um frumburðinn okkar.  Og hefur honum farið svo mikið fram síðan við komum hingað fyrir 1 ári. Bara ekki sama barnið. Það er svo gott að vita það. Honum líður líka svo vel á leikskólanum. Hann er farin að biðja mig um að lengja tíman sinn. Hann er alltaf í fullum í leik þegar ég kem að sækja þá, og þá er hann ekkert tilbúin að faraSmile.   Veiga fer svo að byrja á leikskóla í október, ég gæti látið hana byrja núna, en bíð fram í október.  Svo er líka eftir að koma í ljós með vinnu hjá mér.     

Í dag er Sólveig Stefanía 11 mánaða.  Bara alveg að verða 1 árs. Bara ótrúlegt, finnst svo stutt síðan að hún fæddist.  Og er komið ár síðan við fluttum í Grundarfjörð.  Þetta líður allr svo hratt.

september_2008_004.jpg

snúllan mín alltaf svo glöðSmile

En jæja segi þetta nóg í bili

með kveðju Bryndís

p.s ekki gleyma að kvitta fyrir sig, það er alltaf jafn gaman að sjá hverjir eru að fylgjast meðWink


Allt á fullu

Já nú er allt á fullu í húsinu okkar. Bjarni og múrarinn eru núna að klára að einangra húsið, og byrja svo í dag að hlaða milliveggiSmile Svo það er allt á fullu.  Þetta klárast líklega um miðja viku, og þá er tilbúið fyrir rafvirkja og pípara að koma. Svo kemur múrarinn aftur í byrjun október og múrara allt saman.  Þar á eftir kemur píparinn aftur og leggur gólfhitan. Svo er flotað yfir það. Þar á eftir verða veggir sandsparslaðir. Og þar á eftir er hægt að fara að mála, og setja upp innréttingar og tæki.  Svo ég held að það sé alveg raunhæft að flytja inn fyrir jól.  Vonum það alla vega.  Læt myndir fljóta með af húsinu.    

tekið 11 sep

Erum búinn að láta setja nýjan og stærri glugga, við hliðina á bílskúrnum.

11 september

þetta var tekið 11 september, verið að einangra.

Bjarni

Bjarni á fullu í húsinu

 

séð inní borðstofu og stofu

séð inn í borðstofu og stofu

11 september

 

 

Annars er bara allt þetta  fína héðan úr Grundarfirði. Mamma og pabbi eru komin úr sveitinni, í vetradvölina hér. Gugga systir er búinn að koma sér vel fyrir hér í íbúð sinni á Grundargötunni. Svo allt er að fara í fastar skorður.  

Ég fékk systur mínar allar í gærkvöldi með mér upp í hús og hjálpa mér að sópa og þrífa. Það er svo gott að eiga svona stóra og góða fjölskyldu:)   Allir tilbúnir að hjálpa okkurSmile

Sólveig er útum allt núna. Labbar fram með öllu og figtar í ÖLLU. Nýjasta hjá henni er að figta í sjónvarpinu. Skipta um rásir, hækka og lækka, bara allt sem er hægt að gera framan á því. Og eru bræður hennar ekkert sérlega ánægðir með hana, þegar þeir eru að  horfa á sjónvarpiðLoL  Hún er líka svo snögg að skríða, að maður þarf að passa allt saman.  

Hér er ein mynd af börnum mínum í lokin

september_2008_048.jpg

Bara fallegGrin

En jæja segi þetta nóg í bili

með kveðju Bryndís

 

 


yearbook yourself

Var bent á þessa síðu  www.yearbookyourself.com  og þar gat maður séð hvernig maður lítur út sl áratugiSmile.  Svo hér er útkoman af okkur skötuhjúumWink

 

myyearbookphoto_665386.jpg
 
 1966

 


myyearbookphoto_665348.jpg
 
 1994
 
myyearbookphoto_665349.jpg
 
1968
 
myyearbookphoto_665356.jpg
 
1992
 
myyearbookphoto_665363.jpg
 
1986
 
myyearbookphoto_665364.jpg
 
1972
 
myyearbookphoto_665365.jpg
 
1992LoLGrin
 
myyearbookphoto_665377.jpg
 
1952
 
 
 
Ég held að við Bjarni værum svo flott par árið 1992Smile     Endilega prófið þetta:) Bara fyndiðSmile
kv. Bryndís

Flott:)

Fann þessa flottu mynd af mér hjá Unni systur.  Hún er tekin í kringum 1989-90 

ég

Sérstaklega eru flott gleraugunLoLog má gleyma bleika bandinu sem eru föst við gleraugunTounge Snilld

Annars er bara allt þetta fína að frétta.  Nema að Veiga litla er búinn að vera kvefuð, og hún er nýbúin að fá rör í eyrun. Og hefur lekið slím úr eyrunum hennar sl daga, og í dag þegar ég var að þurrka á henni eyrað, þá kemur rörið úr vinstra eyrna hennar.  Svo hún er komin eyrnabólgu, rörið ekki haldið. Svo þetta byrjar vel, eða þannigErrm  Svo nú er hún komin á sýklalyf.  Ég þarf svo að tala við hál, nef og eyrnalæknir hennar eftir helgi og sjá hvað þarf að gera í þessu.

Svo hefur Gummi Gísli verið hjá okkur síðustu daga. Þar sem Hafrún og Sólberg eru í Glasgow. Og er Emilía hjá Guggu.    Það er búið að vera svaka stuð hér á heimilinu, frændurnir finnst þetta voða spennandi, að fá að gista svona lengiSmile

En jæja hef bara ekkert að segja

með kveðju Bryndís


Könguló könguló vísaðu mér á berjamó

Sælt verið fólkið!

Jæja það er bara allt  gott að frétta af okkur hér.  Húsið gengur fínt. Það er verið að klára að setja milliveggjagrindur, og þá er það tilbúið fyrir múraran að hlaða upp milliveggjasteinunum. Við erum eigilega búinn með öll loft í bili, nema eftir að plast annan helmingin af bílskúrnum.   Svo þetta mjagast allt saman í rétta átt.   Bjarni þarf að fara á eftir niðrí Borganes og fara í Húsasmiðjuna og versla sement og kannski eitthvað fleira.  

Í síðustu viku fórum við með Veigu á Skagan, þar sem hún þurfti að fá rör í eyrun. Og gekk það allt mjög vel. Við vörum komin kl 8 um morgunin, og vörum farin aftur um hálf tíu.  Hún fékk kæruleysissprutu þegar við komum, og þegar það fór að virka, þá var hún frekar fyndinSmile.  Og svo tók svæfingarlæknir hana, og þetta tók ekki nema 5 mín að setja rörin í.  Og síðustu daga hefur lekið slím úr eyrnum á henni. En ég held nú að það sé að minnka núna.

Í gær kítum við svo á berjamó, og týndum smá.  Það var svoooo mikið af berjum, að maður týmdi ekki að faraSmile Og fengum við þetta æðinslega veður. 

Tengdó voru hjá okkur á laugardaginn, og hjálpuðu þau okkar í húsinu.  Börnunum fannst voða gaman að fá ömmu og afa til sín. Strákarnir vildu ekkert leyfa ömmu sinni að fara afturWink

Svo tókst honum Indriða það um daginn að brjóta gleraugun sín, sem eiga víst að vera óbrjótanleg.  En það er 3 ára ábyrgð á þeim.  Svo við fengum ný send. Hann var 2 daga gleraugnalaus, og maður sá strax mun á honum, var svolítið mikið á hausnumTounge.  Og var hann líka ánægður að fá gleraugun aftur.

Ég læt fylgja myndir frá berjatýnslunni okkarSmile

á berjamó

Gugga, Bjarni, Veiga og Unnur á berjamó

Indi að slappa af á berjamó

Indi kunni að slappa af á berjamóWink

við mæðgur

við mæðgur

Einar búinn að tína helling af berjum

Einar búinn að fylla fötuna sína

ágúst 2008 030

Svona litu berjalingin útWink

En jæja segi þetta nóg í bili

kv. Bryndís

 

 

 


Alveg að vera vitlaus af þessu...........ALVEG

JÁ ég verð bara að segja það, ég sé að verða vitlaus af þessu öllu sem við kemur að byggja hús. En maður verður að horfa á heildarmyndina, þegar allt þetta bras og erfiði er búið.   Núna er maður að standa í allskonar brasi.  Húsið er ný orðið fokhelt, svo þá þarf maður að fá fokheldisvottorð til að fá lán, og og allt það tekur sinn tíma, svo þarf maður að fara að sækja um lán og það ferli tekur svona 2 vikur, og þars sem mánaðarmótin eru á næstu helgi, þá verður það aldrei komið í gegn fyrir þann tíma. Og eins og allir vita þá þarf að borga ýmislegt um mánaðarmót.   Svo þetta verður skrautlegt núna næstu daga.   Æ ég bara varð aðeins að tauta um þetta.  Þetta tekur allt svo langan tíma í þessu kerfi, allstaðar, hvað sem maður gerir. 

Og eins og það sé ekki nóg að standa í þessu, og fá allt  á réttum tímum. Ég veit ekki hvað maður er búinn að hringja oft útum allt til að redda hlutum(eða Bjarni sér um það).  Svo er múrarinn að koma líklega í næstu viku, og nú þarf að hafa allt tilbúið fyrir hann, t.d sand. Og finnst manni grátlegt að maður geti ekki bara farið niðrí fjöru og náð sér í sand, en nei maður þarf að kaupa sand, bara fyndiðSmile. Svo pöntuðum við steinull og ýmislegt í síðustu viku, og það vantaði inní þá pöntun.  Ég held að allt sem getur komið fyrir, kemur fyrir okkurWoundering Ekki heppnasta fólk í heimi

ágúst 2008 005Svo erum við búin að vera setja steinullina í loftin og plast yfir það, síðustu daga.  Sæi bróðir hjálpaði okkur um helgina,  Svo höfum við hjónin verið að gera þetta sjálf síðustu daga. Og gengur þetta hægt hjá okkur. Og höfum við sko ekki byggt áður, svo sumt veit maður ekkert hvernig á að gera. En  þetta hefst allt saman...................vonandiHappy það verður alla vega gott þegar loftið er búið, það ekkert sérlega þægilegt að vinna svona uppá pöllum hátt upp. Og er ég frekar lofthræddGetLost 

En alla vega smá púst hér hjá mér. En ég er frekar bjartsýn manneskja, og reyni ekki að láta svona hluti fara í taugarnar á mér. En kannski smá núna Wink   Þetta verður gaman þegar þettaer búið.

en jæja best að hætta að kvarta yfir þessu og fara njóta þess að vera að byggja húsið okkarSmile

með stuð kveðju

Bryndís

 


Brúðkaupsafmæli

Í dag eigum við Bjarni 3 ára brúðkaupsafmæli. Og var Indi skírður þann dagSmile  Þetta var mjög fallegurkiss kiss dagur. Fengum þetta frábæra veður.  Við vorum farin að vera svolítið smeyk, þar sem það var búið að vera norðan þoka alla vikuna áður. En ég hét á hann Hallvarð, og ræddist úr veðrinu. Svo komu hitaskúrir þegar við löbbuðum útúr kirkjunni.  Og það var eina rigning þann dag. Og hef ég heyrt að það boði gott. Eitthver sagði mér að það þýði frjósamt hjónabandLoL  Það hefur ræst ágætlega úr þvíGrin.   Við vorum að spá í að gera eitthvað í tilefni dagsins, fara út að borða eða eitthvað. En er bara að spá í að grilla bara í kvöld. Ég ætla  að rölta yfir í ríkið núna og kaupa freyðivin, og fara með brúðkaupsstaupin og skála upp í húsi í kvöldSmile  

Annars er bara fínt að frétta. Vorum í bænum um síðustu helgi, að kíkja á útsölur, og þá sérstaklega á flísum og svoleiðis hlutum.  Og náðum við að kaupa flísar á baðherbergið og forstofuna.   Og svo erum við á fullu að kaupa allt í húsið núna. Eins og t.d. milliveggjasteina, steinull, einangrunarplast, og allt þetta sem þarf.   Húsið er eigilega orðið fokhelt.  Búið að setja flest gler, og loka því. Svo núna er Bjarni byrjaður á fullu.  Við verðum að vera búinn að setja steinullina og gera milligrindur, fyrir mánaðarmót, því þá kemuru múrarinn. Svo nú er smá stress í gangiFootinMouth  En vonandi hefst þetta allt.   Og planið er ennþá að reyna að flytja inn fyrir jól.

Svo hef ég verið að vinna hjá Unni systur aðeins í Snæþvotti þessa viku. Bara rosa gaman. Gott að komast aðeins út af heimilinu eftir 5 ár að vera heimavinnandi.   Svo kemur Gugga í þessari viku, og er þá flutt vestur í Grundarfjörð til okkar. Og fer svo að vinna í Snæþvotti í næstu viku. Svo þá erum við öll systkinin komin á GrundarfjörðTounge

En jæja ég held að þetta sé gott í bili, set eina mynd hér í lokin af krökkunum sem ég tók í síðustu viku, þegar við fórum í göngutúr, og með okkur voru Emilía og Sólveig Ásta

agust_2008_018.jpg

 Með kveðju Bryndís


húsið

Ég fór upp að húsi í dag, og er búið að loka þakinu.  Og í næstu viku verður sett járnið á það, og jafnvel farið að setja glerin í glugganaSmile  Þetta lítur svo vel út núna. Farið að koma svo góð mynd á þetta.

9 ágúst 2008

9 ágúst

9 ágúst

Erum að vona að geta flutt inn fyrir jól, það verður líka allt að ganga vel næstu mánuði. Iðnaðarmenn að geta mætt á réttum tíma og allt það. Svo við vonum það....  Við hljótum að geta þaðWink

En annars er bara voða lítið að frétta hjá okkur. Bjarni kemur heim á morgun. Og fer svo að vinna í húsinu okkar í vikinu. Loksins kom að því að hann getur byrjað.   Og er hann búinn að fresta sumarfríinu sínu útaf því.  

Veiga er farin að standa upp, stóð meiri segja upp í baðinu áðan. Voða montin.  Hún er á svo skemmtilegum aldri núna, alltaf að fatta eitthvað nýtt. Maður sér breytingu á henni á hverjum degiFalleg

Tók þessa mynd af henni áðan, áður en hún fór að sofa. Hún er náttúrlega  bara sætGrin

með kveðju Bryndís


Brosbörn

Ég fór með Einar í myndatöku hjá Brosbörnum árið 2004, og þá var hann bara 14 mánaða.  Ég var svo ánægð með myndirnar að ég fór aftur með strákana árið 2006 þegar Indi var á 13-14 mánaða.  Og var ég svoooo ánægð með þá útkomu líka að ég er búinn að panta myndatöku hjá Brosbörnum í haust, þegar Veiga verður 13 mánaða. 

Ég var að skoða myndirnar áðan sem teknar voru af strákunum ætla setja sýnishorn af þeim hér

Einar í myndatöku árið 2004

Einar árið 2004

 Einar

Einar árið 2006

Indi

Indi Jens árið 2006

Einar og Indi

Og strákarnir samanSmile

Það verður gaman að fara í haust með þau þrjúWink

kv. Bryndís


sumarfrí búið

Á morgun er sumarfrí strákana búið, og leikskólin byrjar aftur. 

Við erum búin að vera á smá flakki, fórum á Þingeyri í síðustu viku, þar búa amma og afi hans Bjarna. Og stoppuðum við þar eina nótt. Prófuðum við að taka Baldur yfir Breiðafjörðinn.  Stytti ferðina verulega. Alla vega fannst manni þetta ekki lengi að líða. Svo var haldið heim í sveitinna.  Og vorum við þar yfir verslunarmannahelgina.  Við fengum alveg yndislegt veður á Þingeyri. Um 25 stiga hita. En þegar við fórum heim í sveitinna, var nú ekkert sérlega gott veður þar. Bara þoka og smá rigning, og var það svoleiðis mest alla helgina.   En samt gaman. Við héldum brennu á laugardagskvöldið. Þar sem við rifum allt útúr fjárhúsunum, núna er þetta bara einn geymur þar inni.  Svo er planið að þrífa þau, svo hægt sé að nota þau eitthvað.Smile      Svo fórum við systur að synda í sjónum. Og var það kalt, en gamanLoL

Svo var Grundarfjarðar-dagar 25-27 júlí.  Guðrún var hjá okkur alla helgina. Og skemmtu þau sér vel.  Mikið af góðum skemmtatriðum. 

En set hér inn myndir frá sl viku. Svo eru fleiri myndir í albúminu.  Hef þetta nóg í bili

Júlí 2008 057

Á Grundarfjarðar-dögum

Júlí 2008 085

Pabbi og mamma á Grundó-dögum

júlí ágúst 2008 171

við mæðgur heima í sveitinni

júlí ágúst 2008 106

Á leið í sjóinnTounge

júlí ágúst 2008 089

við systur á leið í fjárhúsin, með gömlu góðu nafna-húfunar okkar

júlí ágúst 2008 015

í Baldri

júlí ágúst 2008 071

í Ísafjarðadjúpi,að borða nesti.

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband