svona er nú það

Góðan dag!

Það er nú bara allt gott að frétta héðan úr Grundarfirðinum. Bjarni er uppí húsi að hjálpa smiðinum að setja loftgrindurnar. Og klárast það líklega fyrir helgi.

En það tefst enn þá hjá píparnum. Það voru ekki til á landinu eitthver rör í gólfhitakerfið, en vonast píparin til að hann fái þau 14 nóv. Svo það hefur tafist mun lengur en við héldum. Svo það er farið að vera minni líkur á að við náum að flytja inn fyrir jól. En kannski að við getum bara flutt inn í bílskúrinn, þar sem það er búið að leggja gólfhita, og gætum við byrjað þar baraSmile   Við erum nefnilega búin að segja upp íbúðinni sem við erum í, frá og með 1 janúar.  En ég er samt ekki enn búinn að gefa upp alla von um að flytja inn fyrir jólin. Alltaf að vera bjartsýnTounge Og það er einmitt það sem bjargar mér í gegnum þetta allt saman, eins og hvað ALLT hefur hækkað í verði í sambandi við að byggja.     Var einmitt í Byko sl helgi að versla blöndunartæki og klósett og svoleiðis. Og blöskraði mér hvað þetta er orðið dýrt. 

Við fórum líka í IKEA og keyptum eldhúsinnréttinu þar. Við rétt sluppu í gegn og fengum hana á gamla verðinu. Sem var frábært. Og þar hefur nú mikil hækkun verið á sumum hlutum.

Indi braut glerið í  gleraugunum sínum fyrir 2-3 vikum, og vorum við að panta ný gler í þau. Hann er alltaf jafn óheppin þessi litli pjakkur. Svo hann ætti að fá þau eftir 1-2 vikur. Það verður munur fyrir hann að fá gleraugun sín aftur. Þau voru líka orðin svo rispuð, að hann vildi ekki vera eins mikið með þau. Svo það var bara beðið um gleraugu með góðri rispuvörn í þetta sinnSmile

Sl mánudag fórum við með börnin í myndatöku hjá Brosbörnum. Og gekk það svakalega vel. Ljósmyndarinn var svo ánægð með hvernig gekk. Það væri ekki algeng þegar svona mörg börn eru í myndatöku að það gangi svona vel.  Börnin mín eru svo þæg og góð alltafGrinSidewaysWhistlingTounge       Svo létum við taka eina fjölskyldumynd. Það verður gaman að sjá myndirnar þegar þær verða tilbúnarWink

Ég er meiri segja farin að pakka aðeins niður. Fínt að vera búinn að taka það sem maður er ekkert að nota núna. Það flýtir fyrir að vera snemma í því.  Loksins er maður farin að sjá endan á þessu, að geta flutt inní okkar eigið hús, með nóg að plássi. Og ekki kassar útum allt, eins og er búið að vera hér hjá okkur í 1 ár. Að búa í kössum er ekkert sérlega gaman. Svo verður léttir að geta tekið allt dótið sem við eigum í bílskúrnum hjá mömmu og pabba. Og þau geta farið að nota bílskúrin sinn almennilega aftur.  Þetta átti aldrei að vera svona LANGUR tími.  

Sólveig Stefanía er farin að labba, og er voða montin með það. Hún tók fyrstu skrefin sín á leikskólanum. Svo ég missti að því,  en Hafrún systir var vitni, svo það var innan fjölskyldunarWink. Svo labbaði hún fyrir mig þegar hún kom heim. Svo núna er þetta alltaf að aukast hjá henni

Amma Palla hefð orðið 89 ára í dag, hefði hún lifað.  Til hamingju með daginn elsku amma mín.  

en jæja læt 3 myndir fljóta með

nov08 070

verið að borða morgunmatin 

nov08 106

 Nöfnunar Sólveig Stefanía og Sólveig StefaníaSmile

nov08 128

farin að labba 

Bið að heilsa ykkur öllum

kv. Bryndís 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikil dúlla sem þú átt.  Það er svo gaman að ala upp svona hóp.Við vorum niður í kirkjugarði áðan við Sigurvin og heimsóttum leiðið. Kveiktum á kerti og það var yndisleg stund  í kyrrðinni. Kveðja til ykkar allra. Lóa

Lóa (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 22:58

2 identicon

Hæ skvís!

Flottar myndir:) hún er bara sætust hún Veiga litla, sakna hennar bara strax, er sko ekki búin að sjá hana síðan í gær!!!

kveðja úr Bolungarvíkinni:)

Hafrún og co

Hafrún (IP-tala skráð) 14.11.2008 kl. 18:49

3 identicon

Til hamingju með fyrstu skrefin hennar Stefaníu, algjör dúlla.

Vona ykkar vegna að þið náið að flytja inn í húsið ykkar fyrir jólin, það væri frábært fyrir ykkur að komast loksins í ykkar eigið húsnæði.

Sendi ykkur góðar kveðjur og hafið þið það sem allra best

Kveðja

Berglind

Berglind (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband