6.9.2008 | 22:55
Flott:)
Fann þessa flottu mynd af mér hjá Unni systur. Hún er tekin í kringum 1989-90
Sérstaklega eru flott gleraugunog má gleyma bleika bandinu sem eru föst við gleraugun Snilld
Annars er bara allt þetta fína að frétta. Nema að Veiga litla er búinn að vera kvefuð, og hún er nýbúin að fá rör í eyrun. Og hefur lekið slím úr eyrunum hennar sl daga, og í dag þegar ég var að þurrka á henni eyrað, þá kemur rörið úr vinstra eyrna hennar. Svo hún er komin eyrnabólgu, rörið ekki haldið. Svo þetta byrjar vel, eða þannig Svo nú er hún komin á sýklalyf. Ég þarf svo að tala við hál, nef og eyrnalæknir hennar eftir helgi og sjá hvað þarf að gera í þessu.
Svo hefur Gummi Gísli verið hjá okkur síðustu daga. Þar sem Hafrún og Sólberg eru í Glasgow. Og er Emilía hjá Guggu. Það er búið að vera svaka stuð hér á heimilinu, frændurnir finnst þetta voða spennandi, að fá að gista svona lengi
En jæja hef bara ekkert að segja
með kveðju Bryndís
Athugasemdir
hæhæ Vildum bara þakka aftur fyrir okkur:) Gumma fannst ekkert smá gaman að gista svona lengi hjá ykkur:) takk takk kv. Hafrún
Hafrún og co (IP-tala skráð) 7.9.2008 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.