23.2.2008 | 00:51
Á með laufin sofa, liggja spaðarnir andvaka
Þessi setning er snilld, er úr Áramótaskaup 1985. Við systur vorum að rifa þetta upp áðan, og hlóum míkið.
En þá er komin ný helgi. Bjarni er á leiðinni heim núna. Þurfti að vera aðeins lengur í dag eftir vinnu þar sem hann er vaktstjóri. Og þurfti að ganga frá hlutum. Svo hann kemur á eftir. Er að reyna að vaka eftir honum, en er nú eigilega alveg að sofna Veit ekki hvort það tekst hjá mér að halda mér vakandi í klukkutíma í viðbót. En ég reyni.
Í kvöld hélt ég Herbalife kynningu, eða Álfheiður frænka mín kom til mín og hélt kynningu. Hún er búin að verið að selja þetta í mánuð, og hún er að kenna mér á þetta. Svo hún kom bara til mín. Hún býr á Ísafirði, en er búin að vera fyrir sunnan í vikunni. Svo þetta var tilvalið. Það var mjög góð mæting en við vorum 11 mættar. Hafrún kom með bara "allar" leikskóla-konunar með sér. Ekki amalegt. Svo eru fleiri búnir að segjast ætla að kaupa, svo þetta byrjar bara vel hjá mér
Mamma og pabbi hafa það gott á Kanarý, voða gott veður og mikið um strandamenn þar núna. Mikið gert sér til skemmtunar. Ekki væri amalegt að vera á sólarströnd núna meðan þessi blessaði vetur er. Svo er Biggi bróðir að fara til Nýja Sjálands í næstu viku og verða þau í 2 mánuði.
Gugga systir er hér í Grundarfirði núna, og ætlum við systur að hittast heima hjá Unni annað kvöld og fá okkur smá í glas. Ég nenni nú ekki að drekka eitthvað mikið, bara rétt að smakka. Er ekki alveg að nenna því að vera mjólka mig mikið. Bara gott að komast aðeins út úr húsi;)
En jæja ég er að lognast útaf, bið bara að heilsa ykkur í bili
kveð að sinni og góða nótt
Bryndís
Athugasemdir
Þessi setning er snilld og það var mikið hleygið af henni á mínu heimili. Ég prófaði einu sinni herbalife og ætlaði að gera góða hluti en þoldi það alls ekki í magann. Gekk á sýrutöflum á meðan og það var ekki skemmtilegt. Bið að heilsa ykkur og hafiði það gott.
Lóa (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 09:05
já þetta er snilldarsetning:)
það verður sko stuð hjá okkur í kvöld:)
hlakka mikið til....
kv. Hafrún
Hafrún (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.