2.1.2009 | 23:15
nýtt og betra ár
Þá er komið nýtt ár. Og verður þetta árið sem við fjölskyldan flytjum loksins inní nýja húsið okkar. Sem er búið að taka mun lengri tíma að byggja en okkur grunaði. Svo núna loksins sjáum við fyrir endan á þessu. Ég held að ég hafi aldrei nokkuð tíman verið eins fegin og að skila af mér leiguhúsnæðnu. Sá kafli er búinn og ALLT sem fylgir því. ALDREI AFTUR þangað.
Það fer vel um okkur hjá Bigga og fjölskyldu. Gott að vera hér. Við töluðum við píparan í dag, og þeir koma á mánudag. Og svo sagði rafvirkin að hann myndi koma eftir 5 jan. Svo þetta ætti að fara að hafast. Ég ætla mér að flytja inn í janúar.
Áramótin voru skemmtileg. Vorum við flest öll saman komin hjá Unni systur. Borðum góðan mat svo var horft á Skaupið, sem var það besta í langan tíma. Og vorum við flest öll sammála um það.
En annars er ég voða tóm núna, og hef lítið að segja.
Svo ég segi bara gleðilegt nýtt ár. Og endilega skilið eftir ykkur kveðju
kv. Bryndís
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)