lífið á Hrannarstígnum

Sælt veri fólkið!

Það er bara allt gott að frétta af okkur hér á Hrannarstíg. Lífið gengur sinn vanagang, og allir hressir eins og er.  Vorum að koma heim úr afmælisveislu, en Sólberg er 27 ára í dag, og bakaði Hafrún nokkrar kökur í tilefni dagsinsSmile Svo á hún Sólveig Ásta líka afmæli í dag. Til hamingju með það, bæði tvöWink.   Svo var íþróttarskóli í dag, og fór ég með strákana. Og fannst þeim rosa gaman. Var bara með Veigu í burðarpoka, og fannst henni rosa gaman. Gaman að geta verið meðLoL

Bjarni er farin að vinna aftur, hann fór í gær suður. Strákarnir eru ekkert voða sáttir að sjá pabba sinn svona lítið. En þetta fer nú að róast kannski með vorinu.   

Indi er hættur með snuð. Fórum um páskana niðrá höfn og hann ákvað það að gefa fiskunum dudduna sína. Og hefur þetta gengið eins og sögu. Hann vakanaði einu sinni fyrstu nóttina, og var ekki alveg sáttur með að hafa ekki dudduna sína, en sofnaði fljótt aftur.  Svo hefur hann einstaka sinnum minnst á hana. Svo þetta bara gengur vel. Svo næst á dagskrá er að venja hann af bleyju. Er alltaf að tala við hann um það, en hann segir alltaf "nei"Tounge Er ekkert á því að nenna að standa í því.   En þarf að fara að byrja á því. Pilturin er að verða 3 ára.  Tímin líður svo hratt.  Einar var 3 ára þegar hann hætti á bleyju. Svo það fer að koma tími á þetta.

Það er alveg ótrúlegt hvað maður elskar börnin sín míkið , en ég var að knúsa og kyssa Veigu í dagSólveig og ég. Og ég bara táraðist, fann svo sterka tilfinningu.  Alveg einstök tilfinning, maður heldur á börnum sínum í fanginu og ástin sem maður finnur er engu líkInLove. Varð bara að deila þessu með ykkur.   Yndislegast tilfinnig í heimiSmile

Vetur konungur hefur ekki yfirgefið okkur enn. Maður var kannski alltof bjartsýn í síðustu viku. Það var svo mikil vorlykt í loftinu. Og hélt maður að það væri bara farið að vora. En nei, bara búið að snjóa meir. Þetta er komið gott.  Fór með strákana á Páskadag í heitapottin til mömmu og pabba, og fannst þeim alveg svakalega gaman.  Frábært að geta haft heitan pott í garðinum hjá sér.  Maður kannski fái sér bara svoleiðis í garðin hjá sérW00tWink 

En jæja er að spá í að skella mér í sturtu og fara að sofa. Bið að heilsa ykkur í bili

kveðja Bryndís 


Bloggfærslur 27. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband