Færsluflokkur: Bloggar
22.3.2008 | 00:06
Að koma páskar
Þá eru Páskarnir að skella á. Reyndar finn ég voða lítið fyrir hátíðarblænum yfir páskunum. Eftir að maður var að vinna vaktarvinnu, þá vann maður mjög oft á páskana, og eftir það eitthvernvegin hafa páskarnir bara verið voða venjulegir dagar í mínum huga.
Það er annars bara allt gott að frétta af okkur. Bjarni er að vinna eins og brjálaðingur þessa dagana. Og sjáum við litið af honum núna. En hann er nú alltaf samt í þrjá daga í senn hjá okkur. Það voru veikindi hjá okkur á síðustu helgi, Indi greyið ældi stanslaust í 19 tíma. Var alveg búinn á því greyið, og tók það alveg 3 daga fyrir hann að fá almennilega matarlist aftur eftir þetta. Svo fékk Einar líka ælupest á aðfaranótt mánudags. Og þá var Bjarni farin að vinna og ég ein með tvö sjúklinga, svo þá nótt var ég líka ósofin. Fór þá líka bara að sofa kl 8 á mánudagskvöldið En núna eru þeir hressir. Ég hef sloppið ennþá, og vona að svo verið áfram.
Fengum gesti í gær, Ástrós vinkona kom í heimsókn, það var mjög gaman að fá hana. Við höfðum ekki hist í alla vega 6 mánuði. Svo kom Ingibjörg frænka líka í heimsókn. Svo hefur hún Sólveig Ásta verið dugleg að koma til mín sl daga að leika við strákana og hjálpa mér aðeins Hún var líka að passa strákana fyrir mig á miðvikudagsmorgun þar sem þeir fóru ekki í leikskólan og ég skrapp á mömmumorgun í Kirkjunni. Ég hafði ekki sjálf komist út síðan fyrir helgi, þar sem veikindi strákana spiluðu inní. Svo það var kærkomið að komast aðeins út úr húsi.
Svo fórum við líka í dag í heimsókn á Bersekseyri til Ástrósar og co. Og kíktum við fjárhúsin, þar var verið að taka af rollunum. Og fannst strákunum voða gaman. Gaman líka að koma þarna aftur, hef örugglega ekki komið á Bersekseyri síðan ég var unglngur. Alla vega 10 ár síðan. Alltof langt síðan. Svo þetta var kærkomin heimsókn
Veðrið er búið að vera mjög gott síðustu daga, bara vorlegt í alla staði. Vonandi helst það áfram, en ég er ansi hrædd um að það fari að snjóa í næstu viku, mér sýndist ég sjá það í veðurkortunum í kvöld . Það hlýtur þá að verða gott sumar.
En jæja er svo syfjuð eitthvað, að ég er að spá í að fara bara að hátta. svo ég kveð að sinni
kveðja Bryndís
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.3.2008 | 09:48
Andvaka nótt
Já ég er eigilega alveg ósofin núna. Indi er búinn að vera með ælupest í alla nótt, byrjaði að æla kl hálf 1 í nótt. Og er núna vonandi loksins hættur. Alla vega hefur hann ekki ælt í 30 mín. En þetta hefur verið á 15 fresti í alla nótt Hann og Bjarni eru sofandi núna. Og fór á fætur með Veigu og Einar og er að drekka morgunkaffið mitt, og Veiga situr hér við hlið mér að leika sér með dót. En ég vona svo innilega að maður fái ekki þessa pest, en það er nú líklegt að maður fái þetta, þar sem þetta er komið inná heimilið.
Það er alveg yndislegt veður úti núna, það sól og blíða. Verst að Indi skuli vera lasin, annars hafði maður geta gert eitthvað með krökkunum úti í dag, nota tíma meðan Bjarni er í fríi. Hann er svo sjaldam í helgarfríi.
Sl fimmtudag fór ég með strákana í íþróttarskólan og fannst þeim það alveg ÆÐINALEGA gaman. Einar er alltaf að tala um það. Hafrún kom með mér með Gumma Gísla. Og hún hjálpaði mér með Veigu á meðan ég hljóp á eftir Inda um allan íþróttarsal Hann var ekki mikið fyrir það að fara eftir reglu og röð. Hann bara gerði það sem honum sýndist. Svo maður gerir þetta áfram. Einar spurði mig í gær hvort hann mætti fara uppí íþróttarhús og æfa sig fyrir íþróttarskólan. Einar dafnar svo vel hér í Grundarfirði. Er alltaf að sjá það betur og betur hvað hann er að dafna. Þetta er líka góð undirstaða fyrir þá ef þeir vilja svo fara í íþróttir seinna meir. Svo ætlar Sólveig Ásta að hjálpa mér stundum með þá í íþróttarskólanum. Svo það verður gott. Set myndir fylgja með frá íþróttarskólanum.
Átakið hjá mér gengur bara prýðilega. Ég smakka ekki kók né nammi, og forðast allt sætt. Leyfi mér samt á Laugardögum að fá mér nammi. Ég steig á viktina fyrir 2 dögum og var ég ekki búinn að léttast meira, en það hlýtur að koma. Er búinn að vera svo dugleg. En ég þarf kannski meiri hreyfinu með þessu. En það er búin að vera svo leiðinleg færð, og ég nenni ekki að fara út að labba með vagnin í svona færð. Til að byrja með þá hef ég varla komist út um innkeyrsluna hjá okkur með vagn. Svo um leið og það fer að vora þá byrja ég á fullu í göngutúrum. Og að hjóla um bæinn. Og hana nú. Ég setti svo mynd af mér á ískápin, sem er tekin sumarið 2001, þegar ég og Bjarni vorum nýbyrjuð saman. Þar var ég svo grönn. OG ég horfi á hana á hverjum degi og hugsa, svona ætla ég að verða aftur. Er það ekki málið. Ef maður vill eitthvað svona mikið þá bara einblína á það, og það gerist ég held að það sé málið
En vitið hvað, ég var nú bara að heyra úti í bæ, að það verður mjög fljótlega byrjað á húsinu okkar. Smiðirnir eru að klára eitt verkefni núna, sem er eigilega búið. Og svo byrja þeir að byggja okkar YESSSSSS.....loksins fer maður að sjá grunnin sem maður er búin að horfa á í tæpt ár, verða að húsi. Get ekki beðið. Snilld
Hér á þessari mynd til hliðar, þurftu Gummi og Einar að sitja og bíða þangað til að Inda hópur var búinn. Þeir voru alveg svakalega duglegir að að bíða. Og Sólveig fannst voða gaman líka. Heyrðist ekki í henni allan tíman
En jæja ætli þetta sé ekki komið gott hjá mér í bili. Bið að heilsa ykkur í bili og hafði það gott.
kær kveðja Bryndís
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.3.2008 | 23:54
Grundarfjörður í vetraríki
Notuðum daginn vel, ég og börnin. Fórum í heimsóknir til Unnar systur, Sæa bróðir og enduðum daginn á að fara í mat til Hafrúnar og co. Það var gott veður og vetra konungur ræður ríkjum. Tók nokkar myndir þegar við rúntuðum aðeins um bæinn, og set nokkrar myndir hér inn frá því. Sérstaklega fyrir Bigga bróðir sem hefur það gott í sumar og sól á Nýja Sjálandi. Búið að snjóa míkið síðustu daga.
Það er annars gott að frétta héðan. Í dag er nammidagur hjá mér eins og hjá börnunum, og sit ég hér inní stofu, með uppáhaldið mitt malt og hraun. En þar sem ég hef hætt öllu nammi áti, þá er þetta ekki eins og gott og mér fannst. Fyndið hvað þetta breytist, þegar maður fær sér sjaldan nammi, þá er það ekki eins gott og maður minnti.
Í kvöld er hið árlega búaball eða Árneshreppsmót. Við komumst ekki ár. Maður reynir bara að mæta að ári. Mamma og pabbi eru á því og ég held að Gugga systir hafi ætlað að fara líka.
Það fer að líða að páskum, en Bjarni er að vinna alla páskana. Svo það verður lítið gert um páskana. Bara chillað heima. Svo fer að styttast í það að ég verði þrítug. Rétt mánuður í það. Farin bara að hlakka til. Það er alltaf gaman að eiga afmæli, og ekki er það verra að það sé stór afmæli. Þegar ég varð tvítug, var ég heima í sveitinni. Og þá hélt ég bara smá kaffi. Og það verður örugglega bara svipað núna þegar ég verð þrítug. En kannski að maður haldi svo bara almennilega upp á þessi tímamót í sumar í sveitinni. Búum til stóra brennu og skemmtum okkur
Sólveig litla er komin með eyrnabólgu greyið litla, var farin að taka eftir að hún var svo pirruð í öðru eyranu. Alltaf nuddandi það. En samt ekkert svakalega pirruð. Og sefur bara nokkuð vel á nóttunni og hitalaus. En fór með hana til læknis og þá er hún komin með eyrnabólgu. Sérstaklega í öðru eyranu. Og er hún komin á sýklalyf. Sem henni finnst ógeðslegt á bragði, sem ég skil vel, bara vona að drekka sæta brjóstamjólk og smá grauta. Og svo þarf ég að pína ofan í hana þessu beyska og vonda meðali. Hún er ekkert alltof sátt við mömmu sína þegar ég að gefa henni þetta.
En jæja best að segja þetta nóg í bili, það eru fleiri myndir í albúminu mínu hér frá vetraríkinu í Grundarfirði
bið að heilsa ykkur kæru lesendur
Bryndís
Bloggar | Breytt 9.3.2008 kl. 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.3.2008 | 11:12
JÆJA JÁ
Sæl og bless
Það er bara allt gott að frétta héðan úr Grundarfirðinum, nema veðrið er frekar leiðinlegt. Búið að snjóa alla helgina, sem er nú allt í lagi, en núna er komin slydda og rigning, svo það er allt að fara á flot, og hálka að myndast.
Bjarni kom í gær, og voru strákarnir rosalega ánægðir að fá pabba sinn heim. Vildu varla fara að sofa. Hann verður núna í 3 daga hjá okkur, því hann ætlar að taka smá aukavaktir í vikunni. Og Herbalife salan hjá mér gengur bara mjög vel. Búin að fá nokkra fasta kúnna, og var það einmitt sem ég vonaðist eftir. Ætla svo að setja auglýsingu í Vikublaðið hér í bæ. Svona að sjá hvort að það verði eitthver viðbrögð. Er sjálf að drekka þessa sjeika frá þeim, og trefjatöflur. Og svo er gott að fá sér próteinstengur þegar sykurlöngunni kemur.
Ég ætla mér að fara að grenna mig meira. Markmiði hjá mér núna er að vera búinn að losna við 5 kíló fyrir 1. maí. Svo halda bara áfram. Taka þetta í áföngum. Er búinn að vera nokkuð dugleg síðustu vikur, og ætla að vera mun duglegri á næstu vikum. Og ætlum við Hafrún að peppa hvor aðra upp. Vera saman í þessu. Var að panta mér svaka flotta baðvigt, sem mælir fituprósentu og fleira. Svo maður getur fylgst vel með árangrinum. Vil geta verið létt klædd í sumar og líða vel með það
Sólveig stækkar og stækkar. Hún er að breytast með hverjum deginum. Henni finnst svo gaman af Einar. Einar þarf ekki nema að tala við hana þá er hún farin að hlæja. Einn kvöldmatinn þá sat Einar á móti henni og var að gretta sig framan í hana, og hló svo mikið, að hún fór bakföll Og hjartað í mér bráðnaði, þetta var svo sætt. Það er svo góð þessi tilfinning gagnvart börnumum sínum. Þar sem þau skemmtu sér svo vel saman. Horfði ég á þau, og svo sú tilfinning sem ég fann er ólýsanleg. Bara besta tilfinning í heimi. Inda gengur bara mjög vel með gleraugun. Tekur þau að vísu af sér stundum hér heima, og þarf ég að leita af þeim, en þau finnast fljótt
Mamma og pabbi eru að koma frá Kanarý í dag, búin að hafa það gott þar í 3 vikur í frábæru veðri. Þau voru til í að vera lengur, en ætla bara hafa ferðina á næsta ári lengri. Svo er Biggi bróðir komin til Nýja Sjálands og eru þar í 30 stiga hita. Væri sko alveg til í að vera á þar hjá þeim núna
En jæja segi þetta nóg bili
kv. Bryndís
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.2.2008 | 22:04
Vetur
Veðrið er búið að vera gott sl daga hér í Grundarfirði. Logn og sól. En núna er farið að snjóa á ný. Það er bara vetur Fórum á sunnudaginn með krakkana upp við Grunnskólan hér til að renna okkur á snjóþvotu. Og var það rosalega gaman. Góð brekka þar Svo er bara búið að vera æðinslegt veður síðan. Langt síðan að maður fór að nota svona snjóveður. Þegar við bjuggum í bænum þá gerðir maður ekki mikið að þessu. Eitthvernvegin bara varð aldrei neitt af neinu. Skrítið En eitthvernvegin hér þá verður meira úr hlutunum hjá manni.
Í dag fór Sólveig Stefanía í ungbarnaskoðun, og kom allt mjög vel út. Hún er orðin 6920 gr og 65 cm. Bara allt eins og það á vera. Emilía kom með mér í skoðunina og fannst henni það voða spennandi, og spurði Hildi ljósmóðir um allt sem var gert við Veigu litlu. Emilía kemur alltaf til mín núna eftir skóla, það er voða gaman hjá okkur á daginn. Henni finnst best að fá hafragraut með kanilsykri þegar hún kemur til mín, og er það voða þægilegt að skella í einn graut, fljótlegt og holt Svo eru strákarnir á leikskólanum til 14. Og er Einar og Indi voða ánægðir að hafa Emilíu til að leika við þegar þeyr eru komnir heim. Svo stundum fær Gummi Gísli að koma með okkur heim líka.
Svo hittumst við systur heima hjá Unni sl laugardagskvöld, ég var mætt um 9, og svo klst síðar hringdi Bjarni í mig, og þá var Veiga litla óhuggandi greyið litla. Ég dreif mig heim og þegar ég kom var hún með ekka greyið. Ég náði að hugga hana, lagðist með hana upp í rúm og svæfði. Hún vildi bara fá mömmuknús, ég er svo mikið ein með hana, svo hún var ekkert sátt við að mamma sín væri ekki heima að knúsa sig. Eitt gott að búa svona í litlu plássi er t.d þá skrapp ég bara aðeins heim til að sinna henni, og aftur til Unnar. Stuttar vegarlengdir En annars ég kom heim um hálf 2 leitið. Drakk bara eitthvað smá. En þetta var mjög gaman. Og spjölluð við systur um allt á milli himins og jarðar.
Ég er í smá átaki núna. Er alveg búin að taka af mér nammi og gos, nema leyfi mér eitthvað á laugardögum. Þetta gengur bara mjög vel. Og borða ekkert á kvöldin, nema kannski próteinbar(frá herbalife) Maður verður að gera þetta, svo maður fari ekki að fitna uppúr öllu valdi. Maður er fljótur að bæta á sig kílóum. Svo það er best að byrja strax áður en þau hlaðast meira á mér. Verð að taka Hafrúnu systir til fyrirmyndar, þar sem hún er búinn að léttast um 17 kíló síðan í október. Ekkert smá góður árangur. Bara að ég hefði þessa ákveðni hennar. En kannski kemur það hjá mér
En jæja best að hætta í bili
En endilega kvittið fyrir mig, alltaf svo gaman að sjá hverjir eru að lesa þetta
kv. Bryndís
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.2.2008 | 00:51
Á með laufin sofa, liggja spaðarnir andvaka
Þessi setning er snilld, er úr Áramótaskaup 1985. Við systur vorum að rifa þetta upp áðan, og hlóum míkið.
En þá er komin ný helgi. Bjarni er á leiðinni heim núna. Þurfti að vera aðeins lengur í dag eftir vinnu þar sem hann er vaktstjóri. Og þurfti að ganga frá hlutum. Svo hann kemur á eftir. Er að reyna að vaka eftir honum, en er nú eigilega alveg að sofna Veit ekki hvort það tekst hjá mér að halda mér vakandi í klukkutíma í viðbót. En ég reyni.
Í kvöld hélt ég Herbalife kynningu, eða Álfheiður frænka mín kom til mín og hélt kynningu. Hún er búin að verið að selja þetta í mánuð, og hún er að kenna mér á þetta. Svo hún kom bara til mín. Hún býr á Ísafirði, en er búin að vera fyrir sunnan í vikunni. Svo þetta var tilvalið. Það var mjög góð mæting en við vorum 11 mættar. Hafrún kom með bara "allar" leikskóla-konunar með sér. Ekki amalegt. Svo eru fleiri búnir að segjast ætla að kaupa, svo þetta byrjar bara vel hjá mér
Mamma og pabbi hafa það gott á Kanarý, voða gott veður og mikið um strandamenn þar núna. Mikið gert sér til skemmtunar. Ekki væri amalegt að vera á sólarströnd núna meðan þessi blessaði vetur er. Svo er Biggi bróðir að fara til Nýja Sjálands í næstu viku og verða þau í 2 mánuði.
Gugga systir er hér í Grundarfirði núna, og ætlum við systur að hittast heima hjá Unni annað kvöld og fá okkur smá í glas. Ég nenni nú ekki að drekka eitthvað mikið, bara rétt að smakka. Er ekki alveg að nenna því að vera mjólka mig mikið. Bara gott að komast aðeins út úr húsi;)
En jæja ég er að lognast útaf, bið bara að heilsa ykkur í bili
kveð að sinni og góða nótt
Bryndís
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.2.2008 | 22:43
Sólveig Stefanía 4 mánaða
Í dag 18 febrúar er Veiga litla 4 mánaða. Tímin líður hratt. Langaði bara setja inn myndir af henni og sýna hvað hún hefur stækkað á 4 mánðum. Yndisleg í alla staði
kv. Bryndís
Bloggar | Breytt 19.2.2008 kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.2.2008 | 23:01
Laugardagskvöld
Já það er laugardagskvöld, og er þetta kvöld eins og öll önnur kvöld hjá mér. Sit fyrir framan imban og reyni að horfa á eitthvað. Reyndar er ég búin að hafa lesefni núna, þar sem ég er að fara að taka af mér að selja Herbalife. Aldrei datt mér ég hug að ég hætti eftir að gerast sölumaður fyrir Herbalife, en það eru alveg ágætis tekjumöguleikar í því, og þar sem við erum að fara að byggja og ég er heimavinnandi, þá er þetta góð hugmynd til að fá smá aukatekjur. Er núna bara að lesa mig inn í þetta dæmi allt saman. Kemur svo bara í ljós hvernig þetta þróast hjá mér. Og hvort að það sé eitthver markaður fyrir þetta hér Ég hef aldrei notað þetta sjálf, fyrr en núna er ég að prófa þetta aðeins. Sérstaklega lýst mér vel á prótein-nammið frá þeim. Hef aldrei fundið svona próteinstengur góðar. Og hef ég smakkað margar tegundir, en vanillu tegundin hjá þeim er bara helv... góð . Svo ef ykkur langar að prófa þetta á endilega hafa samaband við mig. Ekki veitir mér af góðum viðskiptavinum
Það gengur alveg rosalega vel með Inda og gleraugun. Hann vill hafa þau á sér alltaf. Vill helst bara sofna með þau. Hann er greinilega að sjá mun betur. Þær segja á leikskólanum að það sé mikill munur á honum. Alveg ótrúlega duglegur
Bjarni er farin suður aftur að vinna, tók aukavaktir núna. Svo hann verður í viku frá okkur núna. Svo er bara allur snjórin farin, bara svell eftir. Og þá er eins gott að fara varlega.
Sólveig Stefanía stækkar og stækkar, er að verða 4 mánaða eftir nokkra daga. Fer með hana þá í skoðun. Það verður gaman að sjá hvað hún er orðin stór. Hann Einar gisti hjá Gumma frænda sínum sl nótt. Og var það voða gaman. Hann vildu nú ekkert koma heim til sín aftur í dag, það var svo gaman hjá frændunum.
Núna erum við búin að skrifa undir verksamingin á bygginu húsins okkar. Og þá er bara bíða þangað til að veðrið verður farið að róast aðeins, vonum bara að það vori snemma í ár þá verður hægt að hefjast handa. Einari hlakka mikið til að flytja í nyja húsið okkar. Sérstaklega þar sem hann fær sér herbergi. Allt voða spennandi, hann er meiri segja búin að velja sér herbergi
En jæja ætli ég segi þetta nóg í bili og hafið það gott, það sem eftir er af helginni
kv. Bryndís
Svo er ein mynd í lokin af okkur gleraugnaglámunum
í fjölskyldunni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.2.2008 | 22:18
Indi Jens komin með gleraugu
Hæ aftur!
Varð bara að setja mynd af Inda Jens, komin með gleraugun sín. Voða flottur Gekk bara ótrúlega vel, hann var greinilega að sjá betur. Og var að skoða bækur mikið. Vonum að þetta haldi svona áfram
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
12.2.2008 | 09:58
snjór og aftur snjór
Sælt verið fólkið
Þá held ég að ég haldi mig bara hér á þessu bloggi, heldur en hinu. Þar sem allt var í klessu. Til að byrja með eru alltaf villur, kemst ekki alltaf inná bloggið mitt þar. Og svo var ansi oft að þegar ég var búin að blogga eitthvað og ætlaði svo að sava það, þá datt allt út. Og síðustu viku bilaði allt blog.central dæmið. Og þegar það kom inn aftur þá var allar myndirnar mínar dottnar út af síðunni Ekki nógu gott. Svo best bara að færa sig hingað yfir.
En annars er bara allt gott að frétta héðan úr Grundarfirði. Það snjóar og snjóar. Fólk er að tala um að það hafi ekki snjóað eins mikið hér síðan veturin 1995. Og bjó ég þá hér í Grundarfirði líka. Ég, Gugga og Palla bjuggum í litlu sætu húsið á Grundargötunni. Og vorum að vinna í fiski. Þá var svo mikill snjór að við komust varla út úr húsinu okkar. Við vorum nú ekkert voðalega duglegar að moka fyrir frama dyrnar hjá okkur, og þurftum að klifra bókstaflega út úr húsinu. En það eru komin 13 ár síðan. Vá hvað tímin líður fljótt Þá var ég bara 17 ára krakki
Veiga litla er búin að vera lasin greyið, en sl föstudag fór ég með hana til læknis, og þá kom í ljós að hún er komin með astma greyið litla. Og er hún komin með púst. Hún er svo dugleg þegar ég gef henni pústið. Bara ekkert mál. Einar er líka með barnaastma. Þegar hann fékk það fyrst var hann svona 7-8 mánaða. Og hann var ekki að fýla þetta basl að gefa púst í gegnum babyhilerinn. En hún er svo lítil ennþá að hún er ekkert að spá þetta þó ég sé að gefa henni þetta
Bjarni kemur svo heim í dag eftir vinnu. Komin þá vaktarfrí. Hann kemur með gleraugun hans Inda með. Svo í kvöld verður gaman að sjá hvernig gengur að láta Inda vera með gleraugu. Vonandi sér hann svo mikin mun að vera með þau, að það verði ekkert mál. Ég er alltaf að tala um gleraug við hann og undirbúa hann undir þetta.
Ætla að láta mynd fylga með sem ég tók útum herbergisgluggan okkar áðan. Sýna ykkur hvernig um er að lýtast hér núna. Kuldalegt er það ekki
kv. Bryndís
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)